VAFRAKÖKUR
(E. COOKIES)

Notk­un vafrakaka (e. cookies)
Þessi síða notar vafrakökur (e. cookies) til þess að upplifun þín af henni sé sem best og til þess að hjálpa okkur að veita þér sem besta þjónustu.

Vafrakökur eru litlar textaskrár geymdar í vafranum þínum og hefur hvert lén (e. domain) sem þú skoðar sitt eigið svæði í gagnagrunni vafrans fyrir kökur. Almennt eru vafrakökur notaðar til að viðhalda notendastillingum, til þess að auðkenna innskráða notendur og til að koma í veg fyrir árásir tölvuþrjóta. Einnig er orðið algengt að nota vafrakökur til þess að rekja feril notenda á vefsíðu með vefmælingum. Auðvelt er að loka á vafrakökur eða eyða þeim en slíkt getur þó hamlað virkni vefsíðunnar. Upplýsingar um hvernig loka má á kökur má finna hér:
all about Cookies.

 

Vef­mæl­ing­ar
Múlalundur not­ast við Google Ana­lytics og Facebook Pixel til vef­mæl­inga á vefsíðum sínum. Múlalundur nýt­ir upp­lýs­ing­arn­ar til að skoða hversu mikið vefsíður fyrirtækisins eru notaðar og hvaða efni not­end­ur eru áhuga­sam­ir um og aðlag­ar þannig vefsíður sínar bet­ur að þörf­um not­enda auk þess að sýna miðaðar auglýsingar á Google Adwords og samfélagsmiðlum með aðferðum á borð við Remarketing. Google Ana­lytics og Facebook Pixel fá óper­sónu­grein­an­leg gögn frá Múlalundi og Múlalundur deil­ir ekki per­sónu­grein­an­leg­um gögn­um not­enda af vefn­um til þriðja aðila.

 

Fyrispurnir
Múlalundur býður notendum að hafa samband í gegnum þar til gert form á síðunni og býðst notendum að skilja þar eftir nafn, síma og tölvupóstfang. Þessar upplýsingar eru notaðar til þess að geta örugglega náð aftur í viðkomandi og til þess að geta svarað viðkomandi á sem ítarlegastan máta, bæði í þeim tilgangi að veita framúrskarandi þjónustu. Múlalundur deilir ekki per­sónu­grein­an­leg­um gögn­um not­enda úr fyrirspurnum til þriðja aðila.

 

Pantanir
Þegar pantað er á netinu hjá Múlalundi þarf að gefa upp kennitölu, nafn, netfang, símanúmer og heimilisfang. Tilgangur þess er að uppfylla kröfur laga um bókhald, að geta örugglega náð í viðkomandi ef þörf er á og til þess að geta afgreitt pantanir hratt og örugglega. Múlalundur deilir ekki per­sónu­grein­an­leg­um gögn­um not­enda úr pöntunum til þriðja aðila.

 

Notkun Múlalundar á kökum

Með því að samþykkja skilmála Múlalundar um notkun á vafrakökum er Múlalundi veitt heimild til að:

  • Þekkja notendur sem hafa komið áður á vefinn og móta upplifun af honum og þjónustu út frá þeirri auðkenningu.
  • Auðvelda notkun á vefnum, til dæmis með því að muna eftir fyrri aðgerðum (t.d. samþykkt á notkun vafrakakna, skráningu eða afþökkun á skráningu á póstlista o.s.fr.).
  • Að birta notendum auglýsingar sniðnar að þeirra þörfum og/eða áhugasviðum í gegnum þar til gerðar rásir (Google, Facebook, Youtube o.fl.)
  • Bæta þjónustuna við þig með greiningu á notkunarmynstri vefsins.

 

Hlekk­ir
Vef­ir Múlalunds inni­halda í einhverjum tilfellum hlekki á aðra vefi t.d. birgja og samstarfsaðila. Múlalundur ber ekki ábyrgð á efni þeirra né ör­yggi not­enda þegar farið er út fyrir vefsvæði Múlalundar.

 

Meðferð Múlalundar á persónuupplýsingum
Persónuupplýsingar sem safnast við notkun á vafrakökum og fyrirspurnarkerfi verða meðhöndlaðar og unnið með þær í samræmi við ákvæði laga nr. 90/2018 um persónuvernd og vinnslu persónuupplýsinga. Múlalundur lýsir því yfir að ekki verði unnið með slíkar upplýsingar í öðrum tilgangi en hér er greint frá og verða upplýsingarnar ekki varðveittar lengur en þörf er á í hverju tilviki. Persónuupplýsingar verða ekki afhentar þriðja aðila nema lög kveði á um annað.

Ef þú hefur einhverjar frekari spurningar, vinsamlegast hafðu samband gegnum tölvupóst – mulalundur@mulalundur.is